Púðursykur

Sykursalurinn

11. - 12. september

Sala hefst

24. ágúst 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Glænýtt uppistand með nokkrum af vinsælustu grínistum landsins.

Ari Eldjárn, Björn Bragi, Sveppi, Saga Garðarsdóttir, Jón Jónsson, Jóhann Alfreð, Emmsjé Gauti og Birna Rún mæta til leiks í nýrri sýningu.

Púðursykur hefur slegið rækilega í gegn undanfarna þrjá vetur og hafa um 30 þúsund gestir lagt leið sína á uppistandið í Sykursalnum.

Nú mæta þau til leiks með nýtt efni í nýrri sýningu.


Á hverri sýningu koma fram fjórir uppistandarar auk kynnis. Sýningin er um tvær klukkustundir með hléi.

Sykursalur er í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri, við Kristínargötu 1 í Reykjavík. Húsið opnar hálftíma áður en sýning hefst.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger