© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
13. júní
Sala hefst
13. apríl 2027, 12:00
(eftir 8 mánuði)




Sólrún Svava Kjartansdóttir er ungur og upprennandi fiðluleikari frá Akureyri. Hún er þessa stundina búsett í Dyflinni þar sem hún stundar fiðlunám við The Royal Irish Academy of Music. Á þessum tónleikum býður Sólrún áheyrendum að hrífast með á vængjum ástarinnar og njóta nokkurra af fegurstu fiðluverkum rómantíska tímabilsins. Á tónleikunum verður meðal annars flutt Sónata í A-dúr fyrir fiðlu og píanó eftir César Franck er eitt þekktasta og ástsælasta kammerverk sem samið hefur verið fyrir fiðlu. Verkið var samið árið 1886 sem brúðkaupsgjöf til hins virta belgíska fiðluleikara Eugène Ysaÿe og er oft talið tónlistarleg ástarjátning. Sónatan einkennist af hlýju, ástríðu og ljóðrænni fegurð, þar sem fiðla og píanó fléttast saman í nánu samtali. Hún er í dag talin eitt af hápunktum fiðlubókmenntanna og ómissandi verk á efnisskrá fiðluleikara um allan heim. Romance í f-moll, op. 11, eftir Antonín Dvořák. Verkið er eitt af ljóðrænustu verkum tónskáldsins og einkennist af hlýrri, söngrænni laglínu og innilegri tjáningu. Dvořák samdi verkið árið 1877 og byggði það á hægri kafla úr strengjakvartett sem hann hafði samið nokkrum árum áður. Romance fangar á einstakan hátt bæði blíðu og söknuð og er fallegt dæmi um hæfileika Dvořáks til að semja tónlist sem snertir áheyrendur með einfaldleika sínum og einlægni. Á efnisskránni verður einnig að finna önnur verk sem endurspegla fjölbreytileika og tilfinningadýpt rómantísku stefnunnar og leiða áheyrendur um heim ástar, þráar og innblásturs.

