Bjórhátíð Ölverk 2026

Gróðurhús, Þelamörk 29

2. - 3. október

Sala hefst

20. ágúst 2026, 12:00

(eftir 17 klukkustundir)

Ölverk brugghús kynnir í sjöunda sinn bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, drykkjar,-  og matarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!

  

Bjórhátíðin fer fram helgina 2. til 3. október í heitu ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði

Staðfestir framleiðendur á hátíðinni verða eftirfarandi - athugið að þessi listi er ekki endanlegur og mun hann uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:

- Horn Brugghús (Höfn)

- Mjólkursamsalan ( Selfoss/Reykjavík )

- Litla brugghúsið ( Garður )

- Hovdenak Distillery ( Reykjavík )

- Víking brugghús ( Akureyri )

- Ölverk brugghús ( Hveragerði )

- Gæðingur brugghús ( Kópavogur )

- Ægir brugghús ( Reykjavík )

- Kjörís ( Hveragerði )

- Djarfi ( Reykjavík )

- The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )

- Fágun ( Ísland )

Dagskrá

Föstudagurinn 2. október

17:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum
20:10 - Páll Óskar
21:10 - 23:00 (TBA)

Laugardagurinn 3. október

16:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum
20:00 - Mugison
21:00 - 23:00 (TBA)


- Hagnýtar upplýsingar -

Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.

Miðaverð
Helgararmband 15.500,-
Föstudagsarmband 9.100,- ( takmarkað magn af miðum í boði )
Laugardagsarmband 8.900,- ( takmarkað magn af miðum í boði )

Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum (áfengir drykkir, óáfengir drykkir, sérgerðir ostar og einstakar ístegundir), tækifæri til þess að þess að hitta og eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, tónlistaratriði og danspartý.

Athugið smakkglösunum verður að skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en hægt verður að kaupa glasið á 1000,-

Afhending armbanda

Fimmtudaginn 1. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.

Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 2. október og laugardaginn 3. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið og/eða inn á veitingarstað Ölverk.

Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )

Gisting
Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.

Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is

Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu beint á móti bjórhátíðarsvæðinu.

Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingastað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að taka við pöntunum kl 21:00).

Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á olverk@olverk.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger