© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
28. febrúar
Miðaverð frá
2.500 kr.




Flutt verða meistaraverk tónbókmenntanna fyrir fiðlu og píanó af þeim Páli og Nínu Margréti en þau hafa komið fram saman á tónleikum gegnum árin og stíga nú í fyrsta sinn saman á svið Norðurljósa. Þau eru í fremstu röð íslensks tónlistarfólks og hafa á ferli sínum leikið á tónleikum víða um heim og hljóðritað fyrir ljósvakamiðla og útgáfufyrirtæki.
Efnisskrá
L.v. Beethoven (1770-1827) Sónata fyrir fiðlu og píanó óp. 30 nr. 1 í A-dúr
F. Mendelssohn (1809-1847) Sónata fyrir fiðlu og píanó MWV Q26 í F-dúr
De Falla (1876-1946)/F. Kreisler (1875-1962) Danse Espagnole
Úrval spænskra virtuósaverka fyrir fiðlu og píanó
M. Ravel (1875-1937) Tzigane
Páll Palomares hóf fiðlunám sex ára gamall undir handleiðslu foreldra sinna, Unnar Pálsdóttur og Joaquín Palomares. Hann gegnir nú stöðu leiðara 2. fiðlu í Dönsku Útvarpshljómsveitinni. Áður gegndi hann sömu stöðu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Randers Kammerorkester í Danmörku.
Páll hefur leikið fjölda einleikskonserta með hljómsveitum á íslenskri og erlendri grundu og ber þar hæst að nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Aarhus Symfoniorkester, Orquesta Sinfónica de Torrevieja, Orquesta Sinfónica de la Región de Murcia, Orchestra Femminile Italiana og Orchestra Sinfonica d‘Este. Páll er jafnframt virkur í kammertónlist og hefur haldið tónleika víða í Evrópu; á Íslandi, Spáni, Þýskalandi, Englandi, Ítalíu, Frakklandi, Búlgaríu, Færeyjum, Danmörku og Hollandi.
Páll hefur hlotið margvísleg verðlaun á ferli sínum. Hann var sigurvegari íslensku keppninnar ,,Ungir einleikarar” árið 2007, hlaut verðlaun í alþjóðlegu keppninni ,,Danish String Competition” árið 2014 auk annarra verðlauna. Páll hefur sótt meistaranámskeið hjá mörgum af virtustu fiðluleikurum heims. Meðal þeirra eru Noah Bendix-Balgley, Nikolaj Znaider og Pekka Kuusisto,.
Páll lauk meistara- og síðar sólistagráðu við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn árið 2018 undir handleiðslu fiðluleikarans Serguei Azizian. Hann lauk einnig bakkalárgráðu í hinum virta Hochschule für Musik "Hanns Eisler" í Berlín árið 2013. Kennari hans var Prof. Ulf Wallin. Áður en Páll hóf námsferil sinn erlendis lauk hann námi við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskóla Kópavogs þar sem hann naut leiðsagnar Auðar Hafsteinsdóttur og Margrétar Kristjánsdóttur.
Páll er meðlimur og einn af stofnendum Kordo kvartettsins sem hefur notið mikilla vinsælda hérlendis síðan 2018.
Páll leikur á fiðlu eftir N. Gagliano, smíðaða um 1750.
Dr. Nína Margrét Grímsdóttir er í fremstu röð klassískra píanóleikara landsins. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, LGSM prófi frá Guildhall School of Music and Drama, meistaraprófi frá City University í London, Professional Studies Diploma frá Mannes College of Music í New York og doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York. Einleiks- og kammertónleikar á Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína. Útgefnir fimm geisladiskar fyrir Naxos, BIS, Acte Préalable og Skref sem allir hafa hlotið frábæra dóma í leiðandi tónlistartímaritum m.a. Gramophone Awards Issue, BBC Music Magazine, Glasgow Herald, Crescendo Magazine, Xi'an Evening News, classicstoday.com and High Fidelity. Nína Margrét starfar við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskólann í Kópavogi, Tónskóla Sigursveins og er forseti WPTA Iceland.

