© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
7. - 29. nóvember
Miðaverð frá
3.900 kr.




Hvað gerist þegar aldagamlar rímur mæta popptónlist? Í FÓLK sameinar Milkywhale kraft kórsöngs, raftónlistar og dans í sviðsupplifun þar sem íslenskur kvæðaarfur fær nýtt líf. Gamlar vísur umbreytast í takta, söng og hreyfingu og fortíðin mætir nútímanum í sameiginlegri hátíð um fólk, röddina og samfélagið.
Poppdúettinn Milkywhale er skipuð Árna Rúnar Hlöðverssyni (FM Belfast) tónlistarmanni og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur dansara og söngkonu. Milkywhale hefur verið lýst sem „skál af skittles, toppaðri með sjöföldum expressó blandað saman við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp og trampólín að morgni jóladags“. Hljómsveitin hefur getið sér gott orð sem danshljómsveit og hefur meðal annars komið fram á Hróarskeldu, Reeperbahn og fjölda annarra tónlistarhátíða. Nú stígur Milkywhale á svið ásamt kvæðakór í nýju tónleikaverki.
Höfundur:
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
Leikstjóri:
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
Kvæðaráðgjafi:
Bjarni Karlsson
Tónlist og hljóðmynd:
Árni Rúnar Hlöðversson
Leikmynd og búningar:
Sigríður Ágústa Finnbogadóttir
Flytjandi:
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir (Milkywhale) ásamt Kvæðakór
Lýsing og Hljóðmynd:
Kristín Waage
Framleiðsla og framkvæmdastjórn:
Milk & Kleina
Kvæðakór:
Antonía Bergþórsdóttir
Ásdís Hanna Gunnhildar Guðnadóttir
Berta Andrea Snædal
Björn Loki Björnsson
Dagur Sölvi Halldórsson
Edda Karólína Ævarsdóttir
Elsa Jónsdóttir
Freyja Stígsdóttir
Josie Anne Gatens
Kjartan Almar Kárason
Óðal Hjarn
Rafn Ágúst Ragnarsson
Rebekka Levin
Telma Huld Jóhannesdóttir
Véný Skúladóttir
Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði

