© 2026 Tix Miðasala
Sena Live
•
23. janúar
Sala hefst
21. ágúst 2026, 10:00
(eftir 4 daga)




ALMENN SALA HEFST 21. ÁGÚST KL. 10
PÓSTLISTAFORSALA SENU LIVE FER FRAM 20. ÁGÚST KL. 10
SKRÁNING Á PÓSTLISTA HÉR
Laddi fagnar 80 ára afmæli þann 20. janúar næstkomandi. Af því tilefni býður hann til tónleikaveislu í Eldborg laugardaginn 23. janúar. Honum til halds og traust verður Hljómsveit mannanna og sérstakir gestir eru vinir Ladda, þau Eyþór Ingi og Ragga Gísla.
Þjóðargersemina Ladda þarf ekki að kynna sérstaklega, við elskum hann öll. Tónlistin hefur alltaf skipað stóran sess í lífi hans og eftir hann liggur stórt safn laga og texta sem hafa lifað með okkur síðustu áratugi.
Undanfarin ár hefur Laddi komið reglulega fram með Hljómsveit mannanna og saman hafa þeir glatt áhorfendur víða um land.
Hér fær tónlistin að njóta sín, gömlu góðu lögin lifna við og gleðin ræður ríkjum. Þetta er einstakt tækifæri til að fagna þessum stóru tímamótum með Ladda og vinum í Eldborg.
AFMÆLISBARNIÐ
Laddi
GESTIR
Eyþór Ingi
Ragga Gísla
HLJÓMSVEIT MANNANNA
Magni Ásgeirsson - Gítar og raddir
Arnar Tryggvason - Hljómborð og píanó
Ármann Einarsson - Saxófónn og harmónikka
Pétur Hallgrímsson - Gítar og mandólín
Sumarliði Helgason - Bassi og raddir
Valur Freyr Halldórsson - Trommur og raddir
Valgarður Óli Ómarsson - Slagverk
ÁSAMT
Kjartan Hákonarson - Trompet
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Saxófónn
Samúel Jón Samúelsson - Básúna
MIÐAVERÐ:
Gull: 21.990 (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990 (rautt á mynd)
B sæti: 15.990 (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990 (gult á mynd)
E sæti: 8.990 (bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live

