Upprásin | Róshildur, Simmi, nuclear nathan

Harpa

2. mars

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Róshildur, Simmi, nuclear nathan.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

    Róshildur vefur saman hljóðfæraleik, marglaga raddútsetningum og hljóðgervlum. Til verður svífandi rafpopp fullt af nánd með íslenskum textum sem einkennast af einlægni og húmor í bland. Á fyrstu breiðskífu hennar Samferða (maí 2026), fjallar Róshildur um fólkið sem hefur verið samferða henni í gegnum lífið, en platan er óður til vinkvenna og systra hennar.  

Nuclear Nathan er rappari og próduser sem hefur gefið út tónlist opinberlega síðan 2020. Tónlist hans á rætur sínar að rekja til trap hip hop og sækir innblástur frá listamönnum eins og Kendrick Lamar, Tyler, the Creator og Pharrell Williams. Hann er upphaflega frá Namibíu en flutti til Íslands árið 2021 þar sem hann hefur verið að byggja upp tónlistarferil sinn samhliða námi.  

Simmi, eða Simon Valentin, er tónlistarmaður með aðsetur í Reykjavík. Frá því hann flutti til Íslands hefur hann verið ötull þátttakandi í grasrótarsenu borgarinnar, staðið að tónleikum og hátíðum með post-dreifing-hópnum.Tónlist Simma einkennist meðal annars af forvitni og barnslegri óreiðu. Í tónlist sinni leitast hann við að skapa rými sem áheyrendur skynja á eigin forsendum – líkt og barn sem leikur sér á leikvelli á fallegum, sólríkum degi, jafnvel þegar jörðin er hulin snjó.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger