© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
22. september
Miðaverð frá
2.000 kr.




Á þessum tónleikum koma fram Apex Anima, KRÍURNAR og slóra
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
--
Apex Anima er sólóverkefni tónlistar- og myndlistarkonunnar Unnar Andreu Einarsdóttur. Eftir margra ára samstarf og tónleikahald með fjölmörgum hljómsveitum og tónlistarfólki, bæði í Reykjavík og erlendis, beindi hún sjónum sínum að eigin tónlistarsköpun þar sem tilraunakennt popp mætir fjölbreyttum greinum raftónlistar. Á tónleikunum flytur Apex Anima efni af væntanlegri annarri plötu sinni, sem kemur út síðar á þessu ári, ásamt lögum af verðlaunaplötunni Elf F O. Hér kemur Apex Anima fram með dansaranum FRZNTE í tónleikasýningu sem er blanda af dansi, myndböndum og gjörningaelementum
-
KRÍURNAR eru árásagjarnar og steypa sér að óboðnum gestum. Gefa frá sér hátt og skrækt gól. Gæða sér aðallega á smáfiski og krabbadýrum. Þær eru stelpupönk / Metalband. Þar sem stelpur leyfa sér að segja hvað sem er, vera dónar og hafa læti.
TOTA - Þórhildur Kristín Lárentsínusdóttir
SAGA - Saga Líf Sigþórsdóttir
TRILLA - Davíð Þór Hlynsson
HRAFNHILDUR - Hrafnhildur Birna Hallgrímsdóttir
ÞÓRDÍS - Thordis Claessen
-
Dansk-íslenski dúettinn slóra, skipaður söngkonunni og hljómborðsleikaranum Söru Flindt og trommu- og slagverksleikaranum Svanhildi Lóu, kannar mörkin á milli spuna og tónsmíða. Tónlist þeirra sækir innblástur í lagasmíðar en nýtir um leið frelsi tilraunamennskunnar, þar sem hljóðgervlar, píanó, trommur og hljóðbrellur með effektpedölum fléttast saman. Með því að rannsaka stigveldi í tónlist og tungumáli býður slóra áheyrendum að hlusta á nýjan hátt.

