Upprásin | Apex Anima & FRZNTE, KRÍURNAR, slóra

Harpa

22. september

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Apex Anima & FRZNTE, KRÍURNAR og slóra.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Almennt miðaverð er aðeins 2000 ISK og sérstakt stuðningsverð vildarvina er 5000 kr. Einnig er hægt að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

Apex Anima er sólóverkefni tónlistar- og myndlistarkonunnar Unnar Andreu Einarsdóttur. Eftir margra ára samstarf og tónleikahald með fjölmörgum hljómsveitum og tónlistarfólki, bæði í Reykjavík og erlendis, beindi hún sjónum sínum að eigin tónlistarsköpun þar sem tilraunakennt popp mætir fjölbreyttum greinum raftónlistar. Hér kemur Apex Anima fram með dansaranum FRZNTE í tónleikasýningu  sem er blanda af dansi, myndböndum og gjörningaelementum.

KRÍURNAR eru árásagjarnar og steypa sér að óboðnum gestum. Gefa frá sér hátt og skrækt gól. Gæða sér aðallega á smáfiski og krabbadýrum. Þær eru stelpupönk / Metalband. Þar sem stelpur leyfa sér að segja hvað sem er, vera dónar og hafa læti.

TOTA - Þórhildur Kristín Lárentsínusdóttir, SAGA - Saga Líf Sigþórsdóttir, TRILLA - Davíð Þór Hlynsson, HRAFNHILDUR - Hrafnhildur Birna Hallgrímsdóttir. ÞÓRDÍS - Thordis Claessen.

Dansk-íslenski dúettinn slóra, skipaður söngkonunni og hljómborðsleikaranum Söru Flindt og trommu- og slagverksleikaranum Svanhildi Lóu, kannar mörkin á milli spuna og tónsmíða. Tónlist þeirra sækir innblástur í lagasmíðar en nýtir um leið frelsi tilraunamennskunnar, þar sem hljóðgervlar, píanó, trommur og hljóðbrellur með effektpedölum fléttast saman. Með því að rannsaka stigveldi í tónlist og tungumáli býður slóra áheyrendum að hlusta á nýjan hátt.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger