Kaffi Músík, Trio JAM – Sígildir sunnudagar

Harpa

24. janúar

Miðaverð frá

3.500 kr.

Trio JAM
María Qing Sigríðardóttir, sellóleikari
Alice Compagnon, fiðluleikari og söngkona
Jonathan Hanke, píanóleikari

Á tónleikunum býður tríóið áheyrendum upp á fjölbreytta dagskrá sígildrar tónlistar þar sem leitað er út fyrir klassískar hefðir og skapað sannkallað kaffihúsaandrúmsloft.

Meðal verka eru Árstíðir Piazzolla, þar sem hinn svipmikli argentínski tangó mætir sígildri tónlist og frelsi til spuna. Þýska tónskáldið Florian Willeitner sameinar hins vegar hefðbundið form kammertónlistar við líflegan og grípandi takt, djass og samtímatónlist í Píanótríói nr. 2.

Titilverk tónleikanna er Kaffi Músík eftir Paul Schoenfield, gamansamt og líflegt verk sem fangar andrúmsloft iðandi götukaffihúsa. Auk þess flytur hópurinn þekkt sönglög tengd árstíðunum í eigin útsetningum, sem og verk eftir þýska tónskáldið Peter Ludwig sem auðga andrúmsloft tónleikanna
enn frekar.

Tríó JAM hefur starfað saman frá árinu 2023 þegar það kynntist í gegnum nám sitt við Tónlistarháskólann í Stuttgart, Þýskalandi. Síðan þá hefur hópurinn komið fram á fjölmörgum tónleikum í Þýskalandi og Frakklandi. 

Markmið hópsins er að færa sígilda tónlist nær áheyrendum með því að blanda henni áhrifum frá jazzi, tangó, poppi og samtímatónlist. Með frásögn, söng og spunaleik leitast tríóið við að segja sögur og skapa persónuleg og tilfinningaleg tengsl við áheyrendur.

https://www.instagram.com/trio._.jam
https://www.facebook.com/tri0jam/

Áætluð lengd tónleika: ein og hálf klukkustund með hléi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger