© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
11. september
Miðaverð frá
1.500 kr.




Proggsveitin Ring of Gyges er á leið á tónleikaferðalag um Evrópu í september. Af því tilefni hefur sveitin ákveðið að blása til upphitunartónleika í Salnum í Kópavogi þann 11.september.
Hljómsveitin hefur vakið athygli víða um heim vegna sinnar einstöku blöndu á bæði nýrri og framsækinni tónlist. Um er að ræða melódískt þungarokk með sérstakri áherslu á óvenjulegar takttegundir og grípandi melódíur.
Spiluð verða lög frá öllum útgáfum sveitarinnar, þ.á.m. breiðskífunum Beyond the Night Sky (2017) og Metamorphosis (2023).

