© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
7. febrúar
Miðaverð frá
5.500 kr.




Flytjendur:
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Xun Yang, bassi
Domenico Codispoti, píanó
Kammermúsíkklúbburinn fagnar nú sjötíu ára afmæli en fyrstu tónleikar klúbbsins fóru fram í Melaskóla þann 7. febrúar 1957. Þá hlýddu á annað hundrað tónleikagestir á Erkihertogatríóið eftir Beethoven í flutningi Björns Ólafssonar, konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Einars Vigfússonar, leiðara sellódeildar SÍ og Árna Kristjánssonar píanóleikara. Eftir hlé bættust við Jón Sen á víólu og Erwin Köppen á bassa og flutti hópurinn Silungakvintettinn eftir Schubert. Líklega óraði fáa tónleikagesti fyrir því að klúbburinn ætti eftir að verða helsti vettvangur landsins fyrir flutning kammertónlistar og að starfseminni yrði haldið áfram óslitið næstu sjö áratugina.
Efnisskrá þessara fyrstu tónleika verður endurtekin á afmælisdaginn 7. febrúar 2027 af fríðum hópi flytjenda: Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigurgeir Agnarsson og Xun Yang eru leiðarar í víólu-, selló- og bassadeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Með þeim leikur ítalski píanóleikarinn Domenico Codispoti sem er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur og Ari Þór Vilhjálmsson, listrænn stjórnandi Kammermúsíkklúbbsins.
Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.
Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

