© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
9. september
Miðaverð frá
4.400 kr.




Nýja Tríó Reykjavíkur
Nýja Tríó Reykjavíkur var stofnað árið 2025 og hlaut strax afar jákvæða dóma fyrir "ótrúlega samhæfni" og "dýnamískan og ljóðrænan flutning" (Morgunblaðið). Hópurinn er nefndur í höfuðið á Tríói Reykjavíkur og er markmið nýskipaðs tríós að halda uppi þeirri merkilegu píanótríóhefð sem Tríó Reykjavíkur festi hér í sessi.
Tríóið skipa Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleikari, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Liam Kaplan, píanóleikari. Öll hafa þau komið fram í tónleikasölum víða um heim en þar má nefna Carnegie Hall, Southbank Centre, Fílharmóníuna í Varsjá, á Tíbrá tónleikaröðinni og í Hörpu. Þau hafa komið fram sem einleikarar með hljómsveitum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Royal Academy of Music Symphony Orchestra, Oberlin Sinfonietta, Oberlin Orchestra og Aspen Conducting Academy Orchestra. Liam Kaplan er leiðari píanódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands en Herdís Mjöll gegnir stöðu fiðluleikara í Minnesota Orchestra í Bandaríkjunum. Geirþrúður Anna starfar sem einleikari og kammerspilari víða um Evrópu og mun gefa út sína fyrstu plötu með Orchid Classics síðar á þessu ári.

