© 2026 Tix Miðasala
Ægir Hafnarfirði
•
8. ágúst
Sala hefst
6. júlí 2026, 14:00
(eftir 15 mínútur)




Bogomil Font og Greiningardeildin á Ægi 220 8. ágúst Félagarnir úr Hljómskálanum, þeir Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi hjálmur fara fyrir þessari fjölskipuðu og hoppandi fersku gleðisveit og mæta með glænýja sumarplötu í farteskinu sem kallast „Haf þú ekki áhyggjur af því“. Þar er að finna ýmis hressileg kulda-kalypsólög sem þeir hafa sent frá sér undanfarin misseri. Sjóddu frekar egg, Skítaveður, Þú trumpar ekki ástina og Þú stendur alltaf með mér hafa spriklað mikið í útvarpi og nú er komið að því að sjá og heyra þau flutt á besta sviði landsins, á Ægi 220 — ásamt fleiri ylvolgum sumarsmellum úr safni sveitarinnar.

