© 2026 Tix Miðasala
Félagsheimilið á Blönduósi
•
18. júlí
Miðaverð frá
6.500 kr.




Húnavaka 2026 – laugardagsball
Húnavaka fer fram á Blönduósi dagana 16.–19. júlí 2026.
Á laugardagskvöldinu mun hljómsveitin Stuðlabandið halda uppi stuðinu fram á nótt.
Húnavökuböll hafa verið afar vel sótt í gegnum tíðina og hlökkum við til að taka á móti ykkur enn á ný á einni skemmtilegustu helgi sumarsins!
Við viljum einnig minna ykkur á að við viljum koma saman, skemmta okkur vel og eiga ánægjulega nótt án vandræða.
Ef það vakna einhverjar spurningar er hægt að senda okkur skilaboð á Facebook undir nafninu - Félagsheimilið á Blönduósi.
Mikilvægar upplýsingar
🎟️ Aðgangur
Armbönd verða afhent gegn framvísun skilríkja og pöntunarstaðfestingu/miða.
Armbönd skulu sett á við afhendingu.
Hægt verður að nálgast armböndin á öðrum viðburðum sem haldnir eru í félagsheimilinu og einnig verðum við með opið fyrir afhendingu á milli 14:00 og 17:00 föstudag og laugardag.
🔞 Aldurstakmark
Miði verður ekki endurgreiddur ef handhafi uppfyllir ekki aldursskilyrði.
⚠️ Armbönd
Sé armband ekki sett rétt á við afhendingu eða sett of laust á úlnlið telst það ógilt.
Ekki verður afhent nýtt armband eða veitt endurgreiðsla vegna ógilds armbands.
Hlökkum til að taka á móti ykkur - Hafa gaman ehf

