© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
29. nóvember
Miðaverð frá
5.500 kr.




Flytjendur:
Pétur Björnsson, fiðla
Guðbjartur Hákonarson, víóla
Urh Mrak, selló
Elena Postumi, píanóÁ tónleikunum hljóma verk eftir þrjú tónskáld sem eiga það sameiginlegt að hafa fæðst á 19. öld og upplifað gríðarlegar samfélagslegar breytingar á æviskeiði sínu, en allir lifðu þeir fram yfir síðari heimsstyrjöld. Verkin þrjú sem flutt verða á tónleikunum voru öll samin milli 1885 og 1919.
Tónleikarnir hefjast á Serenöðu í C-dúr fyrir strengjatríó eftir Erno Dohnanyi, einn merkasta tónlistarmanna Ungverjalands sem naut alþjóðlegrar hylli sem tónskáld, píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Serenaðan er kraftmikið og líflegt verk í fimm köflum og má heyra í henni áhrif Brahms og ungverskrar alþýðutónlistar.
Næst flytja Guðbjartur Hákonarson og Elena Postumi hina lýrísku Víólusónötu nr. 1 í F-dúr eftir Paul Hindemith, eins áhrifamesta tónskálds fyrri hluta síðustu aldar. Hindemith var upphaflega fiðluleikari en gerðist víóluleikari á þrítugsaldri, um það leyti sem hann samdi víólusónötuna. Líkt og tónskáldið lærði Guðbjartur alla tíð á fiðlu en hlaut fastráðningu við víóludeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2026 og leikur hér víólusónötu opinberlega í fyrsta sinn.
Eftir hlé koma allir flytjendur fram í Píanókvartett í c-moll eftir Richard Strauss, sem samdi verkið aðeins tvítugur að aldri og lék sjálfur píanópartinn þegar verkið var frumflutt 1885. Strauss er þekktastur fyrir stór sinfónísk tónaljóð eins og Don Juan, Heldenleben og Alpasinfóníuna enda samdi hann aðeins örfá kammerverk á unga aldri og er þetta í fyrsta sinn sem píanókvartettinn er fluttur á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins.
Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.
Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

