KMK70 ára, starfsárið 2026-2027: Árskort

Harpa

1 viðburður

Miðaverð frá

25.000 kr.

Hér má kaupa árskort Kammermúsíkklúbbsins 2026-27.

Starfsárið 2026-2027 er afmælisár en í febrúar 2027 verða liðin sjötíu ár frá fyrstu tónleikum klúbbsins.

Starfsárið 2026-2027 heldur Kammermúsíkklúbburinn sex áskriftartónleika og eina fjölskyldutónleika í samstarfi við fjölskyldudagskrá Hörpu.Alls verða 22 glæsileg kammerverk sem samin voru á bilinu 1778-2024 flutt af 28 listamönnum, þar af 14 sem koma fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í fyrsta sinn. Þar má helst nefna Stefán Ragnar Höskuldsson flautuleikara, Odd Arnþór Jónsson baritón, Stefán Jón Bernharðsson hornleikara og finnska strengjakvartettinn Meta4 sem lýkur starfsárinu með strengjakvartettum eftir Beethoven og Sibelius. Af 18 tónskáldum sem eiga verk á efnisskrám vetrarins eru fjórir Íslendingar, þrjár konur og eru þrjú tónskáld á lífi.

Kammermúsíkklúbburinn heiðrar aldarminningu eins merkasta tónskálds þjóðarinnar, Jóns Nordal, með flutningi tveggja verka hans frá ólíkum æviskeiðum. Á upphafstónleikum vetrarins hljómar Systur í Garðshorni fyrir fiðlu og píanó, sem Jón samdi aðeins 18 ára gamall og í október verður flutt Dúó fyrir fiðlu og selló, samið 40 árum síðar þegar Jón var á hátindi ferils síns.

Þrjú þekktustu strengjatríó 20. aldarinnar verða flutt í haust, en það eru tríó eftir Ernst von Dohnányi frá Ungverjalandi, Gideon Klein frá Tékklandi og sovéska tónskáldið Alfred Schnittke. Annað sovéskt tónskáld, Sofia Gubaidulina, samdi tríóið Garður gleði og sorgar fyrir flautu, víólu og hörpu sem verður frumflutt á Íslandi á tónleikum klúbbsins í apríl 2027. Á starfsárinu býðst tónlistarunnendum einnig kostur á að njóta tveggja öndvegisverka Brahms sem eru Horntríóið op. 40 og Strengjakvintett nr. 2 í G-dúr, op. 111.

Kammermúsíkklúbburinn hefur verið einn helsti vettvangur landsins fyrir flutning kammertónlistar frá 1957 og er þetta því sjötugasta starfsár klúbbsins. Því verður rækilega fagnað á afmælistónleikum þann 7. febrúar 2027 en þá verður efnisskrá fyrstu tónleikanna endurflutt. Tónleikarnir voru haldnirþann 7. febrúar 1957 og á efnisskrá voru Erkihertogatríóið eftir Beethoven og Silungakvintettinn eftir Schubert.

Krakka-Kammermúsíkklúbburinn er samstarfsverkefni klúbbsins við fjölskyldudagskrá Hörpu og verða tónleikar haldnir í apríl þar sem nemendur úr nokkrum tónlistarskólum munu flytja valda kafla úr kammerverkum. Kynnir verður Sigrún Harðardóttir, verkefnisstjóri barnamenningar í Hörpu.

Starfsárinu lýkur með heimsókn eins eftirsóttasta strengjakvartetts Norðurlandanna, Meta4-kvartettsins frá Finnlandi. Meta4 hefur aðeins einu sinni áður spilað á Íslandi, en þau komu fram á Reykholtshátíð árið 2017. Svo vill til, að einnig eru tíu ár síðan alþjóðlegur strengjakvartett spilaði síðast á vegum Kammermúsíkklúbbsins. Meta4 mun flytja verk eftir Caroline Shaw, Beethoven og Sibelius.

Verið velkomin í Kammermúsíkklúbbinn og tryggið ykkur árskort í dag!

Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.

Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger