© 2026 Tix Miðasala
Tónabíó, Skipholt 33
•
5. ágúst
Miðaverð frá
3.900 kr.




kimono - Arctic Death Ship Live
Rokkhljómsveitin kimono skríður úr dvala og spilar aðra plötu sína, Arctic Death Ship, í fyrsta skipti á Íslandi í 20 ár, á hinum einstaka og margrómaða tónleikastað Tónabíó.
Síðla sumars árið 2005 gaf Smekkleysa út Arctic Death Ship, aðra plötu kimono, og þá fyrstu með Kjartan Braga Bjarnason bak við trommurnar. Platan fékk 5-stjörnu dóma í Morgunblaðinu, DV, Sánd og víðar. Höskuldur Ólafsson, gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði m.a. plötuna skipa sér í hóp með Hvíta Albúmi Bítlanna og Mars Volta og sagði að lokum, "Í heild er Arctic Death Ship afbragðs plata sem afrekar það sem margir reyna en fáum tekst - að gera rokktónlist að marktæku listaverk."
Á svipuðum tíma var hljómsveitin að flytja útgerðina til Berlínar, og sökum tafa í framleiðslu á plötunni, þá orsakaðist það þannig að platan kom út 15. september og nokkrum dögum síðar flaug sveitin til Berlínar þar sem hún varði vetrinum í tónleikaferðir og kynningu á plötunni í Evrópu, þar sem hún kom út nokkru síðar.
Því gáfust fá tækifæri til að spila þetta efni fyrir íslendinga, og eftir Berlínardvölina urðu straumhvörf í kimono þegar Halldór Ragnarsson, bassaleikari, kvaddi sveitina. Tók þá við mikil leit að rétta bassaleikaranum sem endaði með því að kimono varð að tríó. En nú stendur til að gera bragarbót á þessu, og mun sveitin koma fram í Tónabíó, Skipholti 33, 105 Reykjavík (gamli Vinabær Bingó), miðvikudagskvöldið 5. ágúst og leika plötuna í heild sinni auk laga af öðrum plötum kimono. Með þeim Kjartani (trommur), Gylfa (gítar, baritone gítar) og Alison (gítar, söngur) verður Sturla Sigurðsson, bassaleikari (Symfaux, Brött Brekka, Bucking Fastards).
Hvað: kimono leikur Arctic Death Ship
Hvar: Tónabíó, Skipholti 33, 105 Reykjavík.
Hvenær: miðvikudagskvöldið 5. ágúst
Húsið opnar: 20:00
kimono byrja: 20:30
Upphitun: Engin
Miðaverð í forsölu: 3,900 kr
Bílastæði: fjöldinn allur
Næsta ísbúð: 25 m
Næsta strætóstoppistöð: 75 m

