Píanókvartettinn Negla - Sígildir sunnudagar

Harpa

20. september

Miðaverð frá

2.000 kr.

Píanókvartettinn Negla flytur verk eftir Huga Guðmundsson, Amöndu Röntgen-Meier og W.A. Mozart.

Píanókvartettinn Negla hefur starfað saman síðan í janúar 2023 og hefur á þeim tíma vakið athygli fyrir metnaðarfullt tónlistarval og flutning í hæsta gæðaflokki. Kvartettinn skipa Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari, Anna Elísabet Sigurðardóttir víóluleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari. Þær hafa haft það að leiðarljósi í efnisskrám sínum að kynna áheyrendur fyrir nýjum eða sjaldheyrðum verkum í bland við þekkta gullmola tónlistarsögunnar og þessir tónleikar verða þar engin undantekning. Fluttur verður nýr kvartett, Centuria, sem Hugi Guðmundsson samdi fyrir kvartettinn árið 2025. Ekki er víst að hinn almenni tónleikagestur kannist við nafnið Amanda Röntgen-Meier. Hún var þekkt sem fiðluleikari og tónskáld þar til hún giftist og gaf tónlistarferilinn þar með upp á bátinn. Í seinni tíð hafa verið gefin út verk hennar, meðal annars píanókvartett hennar sem heillar með lýrískum fallegum stefjum og skemmtilegu samspili hljóðfæra kvartettsins. Það fer ekki á milli mála hvers vegna tónskáld eins og Brahms, Grieg og Clara Schumann litu upp til hennar og dáðust að verkum hennar. Meðlimir Neglu eru Mozart að eilífu þakklátir fyrir að hafa fyrstur fengið þá hugmynd að bæta víólu (sem hann elskaði sjálfur að spila á) inn í hið klassíska píanótríó og semja fyrstu píanókvartettana. Píanókvartettar hans féllu ekki í kramið fyrst þegar þeir komu út, en þeir þóttu of erfiðir í flutningi fyrir almenning og því seldust nóturnar illa. Útgefandinn sagði því upp samningnum, en upphaflega stóð til að Mozart skrifaði þrjá kvartetta. Í dag píanókvartettarnir tveir eftir Mozart meðal ástsælustu kammerverka og ótal píanókvartettar hafa fylgt í kjölfarið.

Efnisskrá:

Hugi Guðmundsson (*1977): Centuria fyrir fiðlu, víólu, selló og píanó
Amanda Röntgen-Meier (1853-1894): Píanókvartett í e-moll
W.A. Mozart (1756-1791): Píanókvartett í Es-dúr K493

Áætluð lengd tónleika: ein og hálf klukkustund, með hléi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger