Milli orða og anda - Seigla 2026

Harpa

8. ágúst

Miðaverð frá

4.500 kr.

Det Unge VokalEnsemble

Hvað gerist þegar við öndum í takt við 2.000 ára gamalt ljóð? Getur fornt bragform lifnað við að nýju og tengt okkur við raddir sem annars virka svo langt í burtu?

Þegar við syngjum notum við ekki bara röddina - við notum allan líkamann, andardráttinn og ryþmann. Danski kammerkórinn Det Unge Vokalensemble (DUVE) skoðar hvernig tónlist getur skapað tengsl yfir tíma og fléttað saman fortíð og nútíð í sameiginlegri upplifun andardráttar, raddar og hreyfingar. Í hjarta dagskrárinnar er frumflutningur á verkinu Phaethon (2026) eftir Veroniku Voetmann, sem byggir á Metamorphoses eftir Ovid.
Verkið segir frá Phaethon sem vegna stórlætis síns missir stjórn á sólvagninum og setur af stað ljóslogandi hamfarir. Voetmann nýtir hexameter - fornt ljóðform Ovids - og umbreytir því í púls sem lifir í andardrætti, tali og óhefðbundinni raddtækni. Úr verður verk sem sveiflast á milli goðsagnakenndra hamfara og kyrrðar líkamans og skoðar ryþma sem bæði raska og róa.

Í tilefni frumflutningsins á Phaethon flytur DUVE einnig verk eftir norrænu tónskáldin Vagn Holmboe og Sven-David Sandström, ásamt verkum eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Báru Grímsdóttur og Önnu Þorvaldsdóttur.

DUVE er 24 manna kór söngvara á aldrinum 18-35 ára og hefur frá stofnun árið 2009 fest sig í sessi sem einn af fremstu kórum Danmerkur. Kórinn leggur áherslu á að rækta skýran tón, nærveru og sérkenni ungra radda, og að styðja við næstu kynslóð söngvara, tónlistarfólks og kennara. Kórinn hefur ferðast og komið fram víða og deilt danskri kórahefð meðal annars í Japan, Grænlandi, Eistlandi, Litháen, Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Stjórnandi kórsins er Poul Emborg.

  

Lengd: 75 mínútur, án hlés.

  Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr í miðasölu Hörpu.

Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.

Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger