Skilaboðaskjóðan

Leikfélag Akureyrar

13 viðburðir

Sala hefst

26. júní 2026, 22:00

(eftir 6 klukkustundir)

  Litríkt, spennandi og skemmtilegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna! 

Í tilefni af stórafmælum Leikfélags Akureyrar og Samkomuhússins setjum við upp þessa  ástsælu fjölskyldusýningu eftir Þorvald Þorsteinsson. Við fylgjumst með Putta og  Möddumömmu í Ævintýraskóginum þar sem allt getur gerst. Þegar Nátttröllið rænir Putta  þurfa íbúar skógarins að taka höndum saman og bjarga honum áður en sólin sest. En þegar  nornin, úlfurinn og stjúpan neita að hjálpa til verða góð ráð dýr! 

Verkið er fullt af frábærum persónum, bráðfyndnum orðaleikjum og grípandi tónlist eftir  Jóhann G. Jóhannsson sem flest ættu að kannast við. 

Tegund: Barna- og fjölskyldusöngleikur
Fyrir hvern: Alla aldurshópa  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger