Spuni og Svíta - Sígildir sunnudagar

Harpa

6. september

Miðaverð frá

2.500 kr.

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari flytur djarfa og kraftmikla efnisskrá sem samanstendur af verkum eftir J.S. Bach og Guðmund Hafsteinsson. 

Önnur sellósvítan eftir Bach er hans innhverfasta og tregafyllsta. Hún er fullkominn inngangur að hinum magnaða Spuna I, samin af Guðmundi Hafsteinssyni árið 1982. Verkið er metnaðarfullt og stórbrotið og ýtir mörkum hljóðfærisins út í ystu æsar. Tónlistin, sem er á köflum íhugul og á köflum ótrúlega virtúósísk, notar einungis eitt hljóðfæri til þess að taka hlustandann í stórkostlegt og ævintýralegt ferðalag.

Efnisskrá
J.S. Bach: Sellósvíta nr. 2 í d-moll, BWV 1008
Guðmundur Hafsteinsson: Spuni I

Lengd tónleika - 1 klst., án hlés.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger