© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
3 viðburðir
Miðaverð frá
5.900 kr.




Fylgdu slóðinni… ef þú þorir. BREADCRUMBS, hið ásækna, lýríska leikrit eftir Jennifer Haley.
Ljóðræn saga um samband tveggja flókinna kvenna. Alida er einangraður skáldsagnahöfundur sem hefur fengið greiningu um vitglöp. Þvert gegn eigin vilja neyðist hún að reiða sig á Beth, ungan og vandræðalegan umönnunaraðila sem býðst til að hjálpa Alidu að klára ævisögu sína. Saman kafa þær ofan í hin myrku djúp fortíðar Alidu og grafa upp harmleik sem grefur undan hugmyndum þeirra um tungumál, einmanaleika og eðlislægt sjálf.
Einangraður skáldsagnahöfundur sem greinist með heilabilun verður að reiða sig á ungan og vandræðalegan umönnunaraðila til að klára ævisögu sína. Í bardaga viljans kafa þær ofan í myrkan skóg fortíðarinnar og grafa upp harmleik sem grefur undan hugmyndum þeirra um tungumál, einmanaleika og eðlislægt sjálf.
Jennifer Haley er leikskáld sem kannar siðfræði í sýndarveruleika og áhrif tækni á mannleg sambönd okkar, sjálfsmynd og löngun.
Jennifer vann Susan Smith Blackburn-verðlaunin fyrir leikrit sitt, The Nether, sem frumsýnt var með Center Theatre Group í Kirk Douglas leikhúsinu í Los Angeles og vann Ovation-verðlaunin fyrir besta nýja leikritið. The Nether var sett upp utan Broadway af MCC Theater og í London af Headlong Theatre og Royal Court Theatre, og flutt með Sonia Friedman Productions til West End í Duke of York leikhúsinu. Leikritið hefur síðan verið sett upp í 34 löndum og þýtt á 19 tungumál og var sýnt árið 2024 hjá Berliner Ensemble. Meðal annarra leikrita hennar eru Neighborhood 3: Requisition of Doom, sem frumsýnt var á Humana Festival of New Plays, og FROGGY, sem frumsýnt var í CenterREP í febrúar 2025. Jennifer hefur þróað verk hjá Banff Centre, Sundance Theatre Lab, P73 og O’Neill Playwrights Conference. Fyrir sjónvarp hefur hún skrifað handrit að Hemlock Grove og Mindhunter á Netflix. Hún er fulltrúi CAA og Gramercy Park Entertainment. Jennifer er fyrrverandi nemandi í New Dramatists í New York borg, stofnandi Stéttafélags Leikskálda í Los Angeles og býr nú í Austin, Texas.

