© 2026 Tix Miðasala

IÐNÓ
•
5. júlí
Miðaverð frá
2.500 kr.




Ingibjörg Turchi- Eonia
Eonia er nýtt verk úr smiðju bassaleikarans og tónskáldsins Ingibjargar Turchi.
Hefur það verið í vinnslu síðustu misseri eftir að önnur plata hennar, Stropha, kom út árið
2023. Á þeirri plötu bættust þrír tréblástursleikarar við hennar hefðbundnu hljómsveit.
Verkið er samið með samhljóm tréblástursins í huga í bland við hljóðfæri
ryþmasveitarinnar. Eins og á fyrri plötum Ingibjargar er unnið með opin form og frjálsan
spuna sem svo koma saman í nákvæmari útsetningum og mynda þannig þann hljóðheim
sem hún hefur verið að byggja upp síðustu ár.
Verkið verður flutt í heild sinni en verður rammað inn af tónlist af plötum hennar Meliae
og Strophu.
Hljóðfæraskipan er svohljóðandi:
Rafbassi-Ingibjörg Elsa Turchi
Rafgítar-Hróðmar Sigurðsson
Píanó- Magnús Jóhann Ragnarsson
Trommur og slagverk- Magnús Trygvason Eliassen
Tenórsaxófónn-Tumi Árnason
Altósaxófónn-Sölvi Kolbeinsson
Klarínett-Sólveig Morávek
Baritónsaxófónn og flauta-Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Brot úr umfjöllun All About Jazz frá Jazzhátíð 2025:
“The performance unfolded as a suite of shifting moods and dynamics....Over its length,
the piece moved through contrasting passages, its unpredictability recalling the
exploratory spirit of Cecil Taylor while remaining grounded in Turchi's own voice.”

