© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
21. febrúar
Miðaverð frá
4.900 kr.




Candy Floss er ný, litrík og lífleg plata gítarleikarans Francesco Rista. Á þessum útgáfutónleikum fá möguleikar rafmagnsgítarsins að njóta sín til hins ýtrasta, í marglaga samspili tóna, effekta og þróaðrar tækni. Tónleikagestir fá að upplifa kraftmikið hljóðlandslag þar sem gítarinn sem einleikshljóðfæri og með hljóðuppökum færist frá hinu smæsta og fíngerðasta, yfir í yfirþyrmandi styrkleika, gegnum fjölbreytt úrval lita og blæbrigða.
Á tónleikunum teflir Francesco Rista saman minimalískum tónsmíðum eftir Steve Reich, John Cage og Bryce Dessner og svo nýjum verkum tónskálda á borð við Finn Karlsson, Nick Martin og Francesco Rista.
Búið ykkur undir magnaða tónleikaupplifun, viðburðarríku ferðalagi um bjarta liti, þétta hljóðheima og endalausa möguleika rafmagnsgítarsins.

