Candy Floss - Sígildir sunnudagar

Harpa

21. febrúar

Miðaverð frá

4.900 kr.

Candy Floss er ný, litrík og lífleg plata gítarleikarans Francesco Rista. Á þessum útgáfutónleikum fá möguleikar rafmagnsgítarsins að njóta sín til hins ýtrasta, í marglaga samspili tóna, effekta og þróaðrar tækni. Tónleikagestir fá að upplifa kraftmikið hljóðlandslag þar sem gítarinn sem einleikshljóðfæri og með hljóðuppökum færist frá hinu  smæsta og fíngerðasta, yfir í yfirþyrmandi styrkleika, gegnum fjölbreytt úrval lita og blæbrigða.

Á tónleikunum teflir Francesco Rista saman minimalískum tónsmíðum eftir Steve Reich, John Cage og Bryce Dessner og svo nýjum verkum tónskálda á borð við Finn Karlsson, Nick Martin og Francesco Rista.

Búið ykkur undir magnaða tónleikaupplifun, viðburðarríku ferðalagi um bjarta liti, þétta hljóðheima og endalausa möguleika rafmagnsgítarsins.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger