Gæðablóð

Samkomuhúsið

29. - 30. apríl

Miðaverð frá

6.900 kr.

  „Mig langar að túristar sjái mig og spyrji: Where is Hallgrímskirkja?“ 

Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr  miðbænum sameina krafta sína í skemmtilegri og hispurslausri sýningu. Davíð Þór,  Jónmundur og Unnsteinn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir, en geta jafnframt  rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. 

Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni af því að alast upp á Íslandi og sviðsetja  sprenghlægileg jafnt sem grafalvarleg atvik úr eigin lífi. Sýningin afhjúpar samfélagið okkar  á óvæntan hátt og veitir nýja innsýn í hinn margbreytilega veruleika. Eins og þeir segja  sjálfir: „Ef þú ætlar að njóta lífsins sem litaður Íslendingur, þá þýðir ekkert að ætla að lifa  bara venjulegu lífi.“ 

Tegund: Samtímaverk / Uppistand / Sagnagáfa 
Athugið: Aðeins ein sýningahelgi!
Fyrir hvern: Alla sem elska góðar og heiðarlegar sögur  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger