© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
21. júní
Miðaverð frá
2.900 kr.




Lokatónleikar Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar HIMA sem haldin hefur verið árlega síðan 2012. HIMA skiptist í þrjár deildir: Yngri deild, Miðdeild og Eldri deild. Þátttakendur HIMA fá einkatíma, sækja masterklassa, fá leiðsögn í kammertónlist og spila á uppskerutónleikum í Hörpu. Um það bil fjórðungur nemenda og nokkrir gestakennarar koma erlendis frá, en allir kennarar eru hljóðfæraleikarar og kennarar í fremsta flokki. Í HIMA kynnast íslenskir hljóðfæranemar fleiri strengjanemendum á sama reki, bæði íslenskum og erlendum, fá leiðsögn hjá framúrskarandi innlendum og erlendum kennurum og flytja tónlist í einu af bestu tónleikahúsum Evrópu.
Lokatónleikarnir í Hörpu eru sannkölluð hátíð þar sem strengjaleikarar framtíðarinnar leika metnaðarfulla efnisskrá bæði sem einleikarar, í kammerhópum og strengjasveitum.
Tónleikarnir eru rúm klukkustund að lengd, án hlés.
HIMA nýtur stuðnings frá Hafnarfjarðarbæ, Ýli, Barnamenningarsjóði og Rótarýklúbb Reykjavíkur.

