TÖFRI TÖFRI

Tjarnarbíó

3 viðburðir

Miðaverð frá

3.900 kr.

Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu!

Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið.

,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!!


Lalli var aðeins 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum.Í þessari einlægu sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið.Vinur Lalla mun einnig koma við sögu en það er enginn annar er áhættuatriða-þvottabjörninn hann RINGÓ!Áhorfendur fá að kynnast Ringó á mjög sérstakann hátt, því þeir munu heyra hvað Ringó þvottabjörn er að hugsa …en það er gert með glænýju og háþróuðu tækni-töfra-tæki sem Lalla töframaður hefur fundið upp og nefnist ,,Töfrandi tjáninga tækni tæki töframanns”.
Ef þér finnst gaman að hlæja, láta koma þér á óvart og eiga skemmtilega stund að þá er sýningin ,,Töfri Töfri” með Lalla töframanni fullkomin sýning fyrir þig og þitt fólk.Hlökkum til að sjá ykkur!

Lengd sýningar: 50 min
Leikarar og handrit: Lárus Blöndal & Stefán Ingvar
Leikstjórn: Stefán Ingvar
Hljóð: Kristín Waage 
Lýsingarhönnuður : Ásta Jónína
Dramatúrg: Jónsi Hannesson
Búningar: Elma Bjarney
Leikmynd,sjónhverfingar og töfrar: Lárus Blöndal

Sýningin er ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger