Nína Margrét leikur Schubert - Sígildir sunnudagar

Harpa

22. nóvember

Miðaverð frá

4.500 kr.

Á þessum tónleikum flytur Nína Margrét hin ástsælu píanóverk Franz Schubert Impromptus óp. 90 og óp. 142. Impromptu Schuberts eru meðal þekktustu píanóverka tónskáldsins og líkt og sönglög hins austurríska snillings, einkennast þau af himneskum laglínum og tilfinningaþrungnu hljómaferli. Nína Margrét er í fremstu röð íslensks tónlistarfólks og hefur á ferli sínum leikið á tónleikum víða um heim og hljóðritað fyrir ljósvakamiðla og útgáfufyrirtæki.

Efnisskrá
F. Schubert (1797-1828) Impromptus óp. 90 & óp. 142

Impromptus óp. 90 D 899
I. Allegro molto moderato
II. Allegro
III. Andante
IV. Allegretto

Hlé

Impromptus óp. 142 D 935
I. Allegro moderato
II. Allegretto
III. Andante
IV. Allegro scherzando

Dr. Nína Margrét Grímsdóttir er í fremstu röð klassískra píanóleikara landsins. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, LGSM prófi frá Guildhall School of Music and Drama, meistaraprófi frá City University í London, Professional Studies Diploma frá Mannes College of Music í New York og doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York. Einleiks- og kammertónleikar á Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Japan og Kína. Útgefnir fimm geisladiskar fyrir Naxos, BIS, Acte Préalable og Skref sem allir hafa hlotið frábæra dóma í leiðandi tónlistartímaritum m.a. Gramophone Awards Issue, BBC Music Magazine, Glasgow Herald, Crescendo Magazine, Xi'an Evening News, classicstoday.com and High Fidelity. Nína Margrét starfar við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskólann í Kópavogi, Tónskóla Sigursveins og er forseti WPTA Iceland.

Lengd tónleika: u.þ.b. ein og hálf klukkustund, með hléi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger