© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
23. maí
Miðaverð frá
3.600 kr.




Nýja tríó Reykjavíkur heldur sína fyrstu tónleika í Hörpu þann 23. maí 2027. Tríóið skipa Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleikari, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og Liam Kaplan, píanóleikari. Tríóið var stofnað árið 2025 og hlaut strax afar jákvæða dóma fyrir "ótrúlega samhæfni" og "dýnamískan og ljóðrænan flutning" (Morgunblaðið). Hópurinn er nefndur í höfuðið á Tríói Reykjavíkur og er markmið nýskipaðs tríós að halda uppi þeirri merkilegu píanótríóhefð sem Tríó Reykjavíkur festi hér í sessi.
Dúó Ravels fyrir fiðlu og selló er bæði lýrískt og virtúósískt. Tvö verk hljóma svo eftir Lili Boulanger sem byggja á sömu laglínunni. Verkin bera titlana Að vormorgni og Í kvöldhúminu en þar takast á bæði sorg og gleði. Bæði verkin voru upphaflega hljómsveitarverk en hún útsetti þessi stykki sjálf fyrir píanótríó. Lili leiðir okkur svo yfir í ævintýraheim Ravel píanótríósins í a-moll.
Efnisskrá
Maurice Ravel: Dúó fyrir fiðlu og selló
Lili Boulanger: D’un matin de printemps og D’un soir triste
Maurice Ravel: Píanótríó í a-moll
Tónleikarnir eru um 75 mínútur, með hléi.

