© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
4. október
Miðaverð frá
2.900 kr.




Liam Kaplan mun koma fram á einleikstónleikum í fyrsta sinn á Íslandi frá því að hann gekk til liðs við Sinfóníuhljómsveit Íslands 2024. Hann flytur tvö fjölbreytt og ævintýraleg verk eftir Robert Schumann ásamt eigin tónsmíðum.
Efnisskrá
R. Schumann Fantasiestücke, Op. 12
L. Kaplan Variations on an Original Theme
hlé
L. Kaplan Valse sentimental
L. Kaplan Impromptu in F#
L. Kaplan Impromptu in Ab
R. Schumann Humoreske, Op. 20
Liam Kaplan lauk námi í píanóleik og tónsmíðum frá Oberlin Conservatory. Árið 2024 hóf hann störf hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Liam hefur komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum, tekið þátt í fjölbreyttu tónleikahaldi bæði hérlendis og erlendis og sem tónskáld hefur hann hlotið viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars BMI-verðlaun ungra tónskálda árið 2019. Liam er píanisti Nýja tríós Reykjavíkur sem stofnað var árið 2025. Hann hefur gefið út nokkrar hljóðritanir, nú síðast EP-plötuna Sunflower Fields árið 2025.

