Norrænir tónar

Salurinn

23. ágúst

Miðaverð frá

3.900 kr.

Finnski sellistinn Elis Hakola og píanistinn Herdís Ágústa Linnet flytja verk eftir sænsk, finnsk og íslensk tónskáld frá 20. og 21. öldinni. Þetta er hluti af norrænu verkefni þeirra en þau leika prógrammið einnig í Svíþjóð og Finnlandi.

Á tónleikunum verður Íslandsfrumflutningur á verkinu I dunklet spelar ljuset, eftir sænska tónskáldið Siri Eigard, sérstaklega tileinkað dúóinu. Annar frumflutningur verður á tveimur smáverkum eftir Elis Hakola. Verkið Dilla eftir Atla Ingólfsson, sem ekki hefur verið leikið á píanó og selló áður, er einnig á dagskrá.

Þá verður hin glæsilega og kröfuharða sónata fyrir píanó og selló, eftir finnska tónskáldið Heidi Sundblad-Halme, leikin. Það verk hefur aðeins heyrst nokkrum sinnum áður en sökum kynjaójafnréttis fékk hún aldrei verk sitt útgefið. Fjölskylda hennar hefur gefið sérstakt leyfi fyrir flutningnum. Sólóverk eftir Karólínu Eiríksdóttur og Atla Heimi Sveinsson eru einnig á dagskrá.

Elis Hakola og Herdís Ágústa Linnet hafa áður komið fram saman á ýmsum tónleikum. Þar má helst nefna tónleika þeirra í sendiherrabústað Íslands í Stokkhólmi, Hannesarholti í Reykjavík og á listahátíðinni Norpas á Kimito-eyju í skerjagarði Turku, Finnlandi. Þau eru bæði menntuð frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi.

Með þessum tónleikum vilja flytjendur sérstaklega lyfta upp verkum ungra tónskálda og tengja saman Norðurlöndin á sviði menningar og tónlistar.


  

Prógram

Kaksi kappaletta sellolle ja pianolle - Tveir kaflar fyrir selló og píanó (2026)
Elis Hakola (f. 2000)

Sónata fyrir selló og píanó, Op. 14/23 (1934)
Heidi Sundblad-Halme (1903-1973)

Skýin (1995)
Karólína Eiríksdóttir (f. 1951)

HLÉ

Þrír kaflar úr Dimmalimm (1970)
- Intermezzo: Dans árstíðanna
- Millispil I
- Söngur Dimmalimm
Atli Heimir Sveinsson (1938 - 2019)

Dilla
Atli Ingólfsson, (f. 1962)

I dunklet spelar ljuset - Ljós leikur í myrkrinu (2026)
Siri Eigard (f. 2001)

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger