Swae Lee // Same Difference Tour Europe // Reykjavik

Austurbæjarbíó

15. ágúst

Sala hefst

12. júní 2026, 10:00

(eftir 16 klukkustundir)

Garcia Events kynnir með stolti: Swae Lee í Austurbæjarbíó  

  

Listamaðurinn sem er best þekktur fyrir lög á borð við “Unforgettable” ásamt French Montana, “Sunflower” ásamt Post Malone og fyrir störf sín sem helmingur rapp dúósins Rae Sremmurd heldur á Evróputúr í kjölfarið á útgáfu breiðskífu hans “Same Difference”. Á ferðalaginu kemur hann víða við en þann 15.ágúst kemur hann fram á tónleikum í Austurbæjarbíó. Þetta er í annað sinn sem Swae Lee kemur fram á Íslandi en hann kom fram í Laugardalshöll árið 2015 með Rae Sremmurd.

Eftir afar farsælan og áhrifamikinn feril Rae Sremmurd sneri Swae Lee sér að lagasmíðum og eigin tónlist. Áðurnefndar smáskífur Unforgettable og Sunflower eru með stærri poppsmellum aldarinnar og hið síðarnefnda er eina lagið sem hlotið hefur tvöfalda demantsviðurkenningu frá félagi hljómplötuframleiðanda í Bandaríkjunum. Þá hefur Swae Lee ljáð ýmsum öðru tónlistarfólki aðstoð sína og má nefna Beyonce, Travis Scott & Drake í því samhengi.

Swae Lee er eins og áður segir á tónleikaferðalagi að fylgja á eftir nýjustu plötu sinni. Hann vakti gífurlega athygli með framkomu sinni á Coachella nú í vor og tónleikar hans þar voru einn af hápunktum hátíðarinnar í ár. Hann mætir í Austurbæjarbíó með áratug af slögurum í farteskinu og ljóst að mikið stuð verður þann 15. Ágúst.

Það er 18 ára aldurstakmark á tónleikana.

Börn yngri en 18 ára mega koma í fylgd með ábyrgri forráðamanneskju sem hefur náð 25 ára aldri.

ATHUGIÐ. Hver forráðamanneskja má aðeins fylgja og taka ábyrgð á tveimur einstaklingum að hámarki.

Dyraverðir og tónleikahaldarar áskilja sér rétt til að ógilda miða við hurð telji þau að þessum reglum sé ekki fylgt eða að forráðamanneskja geti ekki tekið ábyrgð á þeim sum hún fylgir.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger