© 2026 Tix Miðasala
Sena Live
•
28. nóvember
Sala hefst
12. júní 2026, 10:00
(eftir 4 daga)




ALMENN MIÐASALA HEFST 12. JÚNÍ KL. 10.00
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 11. JÚNÍ KL. 10:00
SKRÁNING Í HANA HÉR
“Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.”
Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.
Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.
Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!
Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á plötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.
Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.
Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.
Athugið: Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er fyrirhugað að streyma tónleikunum.
GESTGJAFAR:
Svala
Krummi
SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson
SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn
LEYNIGESTIR:
???
HLJÓMSVEIT:
Þórir Úlfarsson - Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson - Gítar
Einar Scheving - Slagverk
Gunnlaugur Briem - Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson - Gítar
Ómar Guðjónsson - Pedal Steel
Óttar Sæmundsen - Bassi
Phillip Joseph Doyle - Sax
Tómas Jónsson - Hljómborð
BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind
KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður
LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason
MIÐAVERÐ:
Gull: 21.990 (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990 (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990 (rautt á mynd)
B sæti: 15.990 (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990 (gult á mynd)
E sæti: 8.990 (bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live

