Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Renée Anne Louprette orgel konsertorganisti, USA

Hallgrímskirkja

16. ágúst

Miðaverð frá

4.200 kr.

Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Renée Anne Louprette orgel konsertorganisti, USA

Renée Anne Louprette er bandarískur organisti, stjórnandi og kennari sem hefur hlotið margar alþjóðlegar viðurkenningar. The New York Times hefur m.a. lýst henni sem „einum fremsta organista New York-borgar“. Frá júní 2026 gegnir hún stöðu tónlistarstjóra og organista við Third Presbyterian Church í Rochester í New York.


Louprette hefur komið fram á fjölmörgum orgelhátíðum og tónleikum víðs vegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu, meðal annars í Royal Festival Hall í London, Notre-Dame í París, Westminster Abbey og víða um Norðurlönd. Hún hefur starfað sem prófessor og orgelkennari við Bard College Conservatory, Rutgers University og fleiri háskóla.


Hljóðritanir hennar hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda, meðal annars frá The New York Times. Hún er Fulbright-fræðimaður og hefur sérhæft sig í tónlist J. S. Bach, franskri orgeltónlist og spunaleik.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger