© 2026 Tix Miðasala
Hallgrímskirkja
•
26. júlí
Miðaverð frá
4.200 kr.




Orgelsumar í Hallgrímskirkju – Tobias Frank orgel (Sankt Lukas, München)
Tobias Frank er tónlistarstjóri og organisti við lútersku dómkirkjuna St. Lukas í München, þar sem hann hefur sinnt kirkjutónlistarstarfi frá árinu 2015.
Hann stundaði nám í kirkjutónlist, konsertorgelleik og tónlistarkennslu við Tónlistar- og sviðslistaháskólann í München og hélt síðar áfram námi í enskri kirkjutónlist og orgelleik á Englandi. Frá 2008 til 2015 starfaði hann sem tónlistarstjóri við St. Johannis kirkjuna í Neubrandenburg í Norður-Þýskalandi og var jafnframt listrænn stjórnandi alþjóðlegrar orgelhátíðar sem þar var haldin.
Tobias Frank heldur reglulega orgeltónleika í helstu kirkjum og dómkirkjum í Þýskalandi og víðar um heim, meðal annars í Westminster Abbey, St. Paul's Cathedral, Notre-Dame de Paris, Frauenkirche í Dresden og Berliner Dom. Geisladiskar hans hjá útgáfunum Hänssler ProfilEdition og Rondeau Production hafa hlotið afar jákvæða umfjöllun í alþjóðlegum tónlistarfjölmiðlum.
Í tilefni af 50 ára ártíð franska tónskáldsins Marcel Dupré árið 2021 hafði Tobias Frank frumkvæði að og stýrði gerð alþjóðlegu heimildarmyndaraðarinnar Dupré Digital, og kom tónlistarfólk og viðmælendur hvaðanæva úr heiminum að verkefninu.
Með því að efna til tónleika með sérstöku sniði leitast Tobias Frank við að vekja áhuga barna og ungs fólks á helstu verkum kirkjutónlistar, svo sem Þýskri sálumessu eftir Brahms og Jóhannesarpassíu Bachs. Tónleikaröð hans, The Organ Tells Stories, er sérstaklega ætluð yngri hlustendum og miðar að því að miðla töfrum orgelsins til nýrra kynslóða.
Auk tónleikahalds fæst Tobias Frank við gerð útvarpsefnis og sinnir útsetningum og ritstjórn fyrir ýmsa útgefendur.
Efnisskrá:
John Williams (f. 1932)
March of the Resistance
úr Star Wars: The Force Awakens
Útsett fyrir orgel af Tobias Frank
Sergei Rachmaninoff (1873–1943)
Tilbrigði við stef frá Corelli, op. 42 (1931)
Útsett fyrir orgel af Tobias Frank
John Stuart Archer (1866–1954)
Londonderry Air
Alexandre Guilmant (1837–1911)
Sónata nr. 1 í d-moll, op. 42 nr. 1
Introduction et Allegro – Pastorale – Finale
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

