© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
24. september
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 21 klukkustund)




Fáir hafa haft jafn mikil áhrif á sviði kvikmyndatónlistar og ítalska tónskáldið Ennio Morricone. Hann samdi tónlist við meira en 400 kvikmyndir og sjónvarpsþætti og er af mörgum talinn eitt merkasta kvikmyndatónskáld allra tíma. Mikill hluti tónlistar hans fyrir kvikmyndir lifir enn góðu lífi utan kvikmyndatjaldsins en galdurinn margfaldast þegar tónlist og mynd koma saman. Morricone var gríðarlega fjölhæfur, gat auðveldlega tekist á við ólíkar tegundir tónlistar og margar þekktustu laglínur hans hafa enn djúpstæð áhrif á áhorfandann.
Á þessum kvikmyndatónleikum leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist úr mörgum af þekktustu kvikmyndunum sem meistari Morricone vann að. Þar á meðal eru Once Upon a Time in America, The Untouchables, Cinema Paradiso, Once Upon a Time in the West og The Mission. Sýnd verða brot úr kvikmyndunum á stóra tjaldinu á meðan á flutningi stendur og úr verður ógleymanleg stund fyrir kvikmyndaáhugafólk og tónlistarunnendur.
Tónleikarnir eru um 90 mínútna langir, án hlés
Hljómsveitarstjóri
Thiago Tiberio
Einsöngvari
Dísella Lárusdóttir
Morricone Kvikmyndatónlist

