Pínulitli tónsprotinn - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

20. febrúar

Sala hefst

20. febrúar 2027, 10:00

(eftir 9 mánuði)

Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Hljómsveitarstjóri
  Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir 

Kynnir
Níels Thibaud Girerd / Bolli Könnuson Le Stell 

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger