© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
9. október
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 21 klukkustund)




Níunda sinfónía Ludwigs van Beethoven er af mörgum talin eitt glæsilegasta tónverk sögunnar. Form hennar og dramatískt umfang er mikilfenglegt og hún stendur fyllilega undir þeirri nafnbót að teljast til eins af hornsteinum vestrænnar tónlistarsögu. Eftir fyrstu þrjá þættina sem mótaðir eru af miklum innri átökum, færir fjórði þátturinn von og trú á mannkynið með túlkun tónskáldsins á Óðnum til gleðinnar eftir Friedrich Schiller. Sinfóníuna má líta á sem stórfenglega brýningu til mannkyns um að leita samkenndar og mennsku í gleðinni. Einsöngvarar tónleikanna eru meðal þekktustu söngvara þjóðarinnar að ógleymdum tenórsöngvaranum Stuart Skelton. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Söngsveitin Fílharmónía og Kór Langholtskirkju færa okkur þetta magnaða verk, undir stjórn Edwards Gardner.
Tónleikarnir eru í samstarfi við Arctic Circle - Hringborð Norðurslóða og Höfða friðarsetur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands.
Hljómsveitarstjóri
Edward Gardner
Einsöngvarar
Harpa Ósk Björnsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir
Stuart Skelton
Andri Björn Róbertsson
Kórar
Söngsveitin Fílharmónía
Kór Langholtskirkju
Efnisskrá
Ludwig Van Beethoven Sinfónía nr. 9

