© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
2. apríl
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Tónskáldið, hljómsveitarstjórinn og píanóleikarinn Joe Hisaishi er einn þekktasti tónlistarmaður samtímans þökk sé fíngerðri og vandaðri tónlist hans fyrir hljómsveitir og einleikshljóðfæri. Hann hefur samið tónlist við yfir 100 kvikmyndir en það er einkum tónlist hans við kvikmyndir Ghibli-myndversins í Tókýó sem borið hefur hróður hans um heiminn. Hisaishi er eftirsóttur hljómsveitarstjóri og kemur reglulega fram með fremstu sinfóníuhljómsveitum heims og tónleikar með tónlist hans seljast iðulega upp með löngum fyrirvara. Meðal verka sem flutt verða er nýr konsert fyrir hljómsveit og svíta úr einni af Ghibli-myndum hans.
Það er mikill fengur að fá þennan heimsþekkta tónlistarmann í heimsókn og geta notið í fyrsta sinn tónlistar hans í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Hljómsveitarstjóri
Joe Hisaishi
Efnisskrá
Tónlist eftir Joe Hisaishi

