Mattheusarpassían - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

18. mars

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Það er ekki á hverjum degi að ráðist er í flutning á þrekvirki  J. S. Bachs, Mattheusarpassíunni, en árið 2027 verða 300 ár liðin frá frumflutningi hennar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nú þetta stórvirki tónlistarsögunnar ásamt fjölda einsöngvara og kóra undir stjórn Benedikts Kristjánssonar. Benedikt er okkar fremsti túlkandi á söngtónlist Bachs og eftirsóttur sem slíkur  um gervalla Evrópu. Hér leiðir hann hljómsveitina auk þess að syngja hlutverk guðspjallamannsins. Með Benedikt koma fram margir af okkar fremstu söngvurum ásamt einvalaliði erlendra einsöngvara. Þrír kórar taka þátt í flutningi þessa mikilfenglega verks, sem tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi getur látið framhjá sér fara.

Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
  Benedikt Kristjánsson 

Einsöngvarar
Anton Haupt
Herdís Anna Jónasdóttir
Oddur Arnþór Jónsson
Reginald Mobley
Sveinn Dúa Hjörleifsson 

Kórar
Kór Langholtskirkju
Mótettukórinn
Skólakór Kársnesskóla

Efnisskrá
Johann Sebastian Bach  Mattheusarpassían  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger