Aðventutónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

3. desember

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Það er fátt sem dregur betur fram eftirvæntingu aðventunnar en þokkafull og hlýleg tónlist klassíska tímabilsins. Úr óperu Mozarts um Idomeneo drottningu kemur þokkafull balletttónlist sem er vinsæl ein og sér í tónleikasölum heimsins, utan samhengis óperunnar. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttiwr leikur einleik í léttleikandi D-dúr sellókonserti annars meistara klassíska tímans, Josephs Haydn, en konsertar hans fyrir hljóðfærið eru algjör kjarnaverk selló-bókmenntanna og ná alltaf að heilla áheyrendur. Sjaldheyrð er hins vegar sinfónía eftir Mariönnu Martines sem yfirleitt er talin hafa verið fyrsta konan til að semja sinfóníu. Hún náði að rækta tónlistargáfur sínar þrátt fyrir að lifa í karllægum heimi austurrísks tónlistarlífs á átjándu öld. Hljómsveitarstjórinn Matthew Halls stjórnar að lokum hinni svokölluðu Linz sinfóníu Mozarts sem kennd er við borgina austurrísku en þar hafði tónskáldið stutt stopp árið 1783 og kom borginni rækilega á heimskort tónlistarsögunnar með þessari sólbjörtu sinfóníu.

Hljómsveitarstjóri
Matthew Halls 

Einleikari
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir 

Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Ballettónlist úr óperunni Idomeneo
Joseph Haydn Sellókonsert nr. 2
Marianna Martines Sinfónía í C-dúr
Wolfgang Amadeus Mozart  Sinfónía nr. 36 „Linz“  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger