Sinfónían á Myrkum - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

28. janúar

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Á tónlistarhátíðinni Myrkum Músíkdögum er ný tónlist í brennidepli. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur tvö tónverk eftir þá Kjartan Sveinsson og Hauk Tómasson. Þá eiga Bára Gísladóttir, Þuríður Jónsdóttir og Clara Iannotta einnig verk á efnisskránni. Kjartan er ótrúlega fjölhæfur tónlistarmaður og tónskáld. Þekktur sem einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Sigur Rósar en einnig fyrir tónsmíðar sem fluttar hafa verið víða um heim. Haukur Tómasson er á meðal okkar fremstu tónskálda og hefur hljómsveitin flutt og hljóðritað fjölda verka hans. Ferill Báru Gísladóttur er á hraðri uppleið og á þessum tónleikum verður verk hennar, sea sons seasons, flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Þar veltir tónskáldið fyrir sér hafinu og þeim fjölbreyttu verum sem þar búa, raunverulegum sem óraunverulegum. Á tónleikunum leikur hin heimsþekkta Carolin Widmann nýjan fiðlukonsert eftir Clöru Iannotta. Þessi konsert komst nýlega í menningarpressuna þegar hljómsveitin sem pantaði verkið í upphafi neitaði að flytja það. Konsertinn er skrifaður fyrir Widmann og kannar litamöguleika fiðlunnar og hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Á tónleikunum hljómar einnig verk Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2014, Miss Reykjavík Rita.

Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason 

Einleikari
Carolin Widmann 

Efnisskrá
Þuríður Jónsdóttir  Miss Reykjavik Rita
Clara Iannotta sand like gold-leaf in smithereens
Kjartan Sveinsson Nýtt verk – frumflutningur
Haukur Tómasson Sixty Silver Domes – frumflutningur
Bára Gísladóttir sea sons seasons frumflutningur á Íslandi  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger