Ungir einleikarar 2027 - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

23. apríl

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem bera yfirskriftina Ungir einleikarar, kynnumst við nokkrum af björtustu framtíðarstjörnum íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir eru sannkölluð uppskeruhátíð, þar sem sigurvegarar í einleikara- og einsöngskeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands stíga á svið með hljómsveitinni. Andrúmsloftið á þessum tónleikum er jafnan einstakt og eftirvæntingin mikil þegar ungu tónlistarfólki gefst færi á að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, á glæsilegasta tónleikasviði landsins, í Eldborg.

Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er Samuel Lee, sem sigraði hina virtu Malko - stjórnendakeppni árið 2024 og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta starfsári á eftirminnilegum tónleikum. Undirtektir gesta á tónleikunum voru afar góðar og því er honum boðið hingað á nýjan leik í þetta gefandi, en krefjandi verkefni.
Einleikarakeppnin fer fram í byrjun árs 2027 og verða nöfn sigurvegara og efnisskrá tónleikanna birt á vef hljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.

Hljómsveitarstjóri
Samuel Lee 

Sigurvegarar keppninnar Ungir einleikarar

Efnisskrá kynnt síðar  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger