Ungsveitin leikur Sheherazade - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

20. september

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 21 klukkustund)

Á tónleikum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fá tónleikagestir tækifæri til að horfa inn í framtíð íslensks tónlistar lífs. Á ári hverju tekst unga fólkið okkar á við metnaðarfullt verkefni úr tónlistarsögunni sem þau velja sjálf eftir umhugsun og rökræður. Nú verður fyrir valinu glæsilegt hljómsveitarverk RimskíjKorsakovs sem byggt er á ævintýraheimi Þúsund og einnar nætur en þann sagnaheim spinnur hin heillandi Sheherazade kvöld eftir kvöld fyrir soldáninn og bjargar þannig lífi sínu. Hljómur sinfóníuhljómsveita verður tæplega mikið litríkari en í einmitt þessu tónverki enda var Rimskíj-Korsakov yfirburða meistari í því að skrifa fyrir hljómsveit. Verkið er það langvinsælasta eftir tónskáldið og ástæður vinsældanna eru algjörlega skiljanlegar. Tónlistin er uppfull af heillandi laglínum sem kryddaðar eru af framandi hljóðheimi og hér eru allir litir sinfóníuhljómsveitar notaðir til fulls.

  Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Hljómsveitarstjóri 
Nathanaël Iselin 

Efnisskrá
Nikolai Rimsky-Korsakov Sheherazade
  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger