ATTACCA! Upphafstónleikar með Barböru Hannigan - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

3. september

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 21 klukkustund)

Barbara Hannigan, nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir einstökum upphafstónleikum starfsársins þar sem tími og rúm renna saman. Tónleikarnir bera yfirskriftina Attacca!, en það hugtak er notað í tónlist þegar kaflar eða tónverk eru flutt án þess að hlé sé gert á milli þeirra. Kvöldið hefst á áhrifamikilli tónlist fyrir slagverk og málmblásara eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives sem leiðir okkur inn í frumflutning á tónverkinu Undark eftir nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Huga Guðmundsson. Þá fáum við að upplifa saman þekktustu þögn tónlistarsögunnar í 4 mínútur og 33 sekúndur. Þetta umtalaða listaverk er eftir hinn tilraunaglaða John Cage og vildi hann með því vekja hlustandann til meðvitundar um eigin líkama, umhverfi sitt og þá staðreynd að ekki er til neitt sem heitir alger þögn. Tónleikunum lýkur á að fyrsta sinfónía Mahlers fær að hljóma í öllum sínum stórfengleika.

OPIN KYNNING - BARBARA HANNIGAN
Þriðjudaginn 1. september kl. 18 gefst áhugasömum tækifæri til að kynnast nýjum aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníunnar. Barbara Hannigan segir frá listrænum áherslum og hápunktum í dagskrá á nýju starfsári. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Hljómsveitarstjóri
Barbara Hannigan 

Efnisskrá
Charles Ives  From The Steeples And The Mountains
Hugi Guðmundsson  Undark – Frumflutningur
John Cage  4:33
Gustav Mahler Sinfónía Nr. 1  


Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger