© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
28. ágúst
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Klassíkin okkar hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ómissandi upptaktur að nýju starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Að venju kennir ýmissa grasa á fjölbreyttri efnisskránni sem gleðja mun hug og hjarta á þessu síðsumarkvöldi: Leiftrandi fjörug hljómsveitartónlist og tregafullir söngvar í bland við ástríðufullar aríur, hetjusöngva og kraftmikinn píanóleik. Stjörnur kvöldsins eiga það margar sameiginlegt að prýða tónleikadagskrá komandi starfsárs og gefa hér tónleikagestum tækifæri til að njóta hæfileika sinna og útgeislunar. Það er Daníel Bjarnason sem heldur um tónsprotann og leiðir Sinfóníuhljómsveit Íslands á þessum skemmtilegu tónleikum sem verða að auki í beinni útsendingu á RÚV.
Hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason
Píanó
Ásta Dóra Finnsdóttir
Sópran
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Bryndís Guðjónsdóttir
Tenór
Elmar Gilbertsson
Söngur
Unnsteinn Manuel Stefánsson
Kór
Karlakór Reykjavíkur

