© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
13. september
Miðaverð frá
2.450 kr.




Bryndís Guðjónsdóttir sópran
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari
Efnisskráin, sem hverfist í kringum tvo stórkostlega ljóðaflokka, leiðir áheyrandann í gegnum tónheim tveggja stórmeistara þýsku rómantíkurinnar; Gustavs Mahler og Richards Strauss. Verk þeirra einkennast af margslunginni tilfinningadýpt og afar fínlegri meðhöndlun texta og tóna. Mörg laganna eiga það sameiginlegt að vera ýmist flutt með sinfóníuhljómsveit eða píanói, enda bæði tónskáldin einstaklega sinfónískt þenkjandi og afbragðs píanóleikarar.
Tónleikarnir hefjast með hinu leikandi og þjóðlega Wer hat das Liedlein erdacht? eftir Mahler úr Des Knaben Wunderhorn (Drengurinn með töfrahornið), sem er safn þýskra þjóðvísa sem mörg ljóð- og tónskáld notuðu í sköpun sinni á 19. og 20. öld. Þar á eftir fylgir ljóðaflokkurinn Rückert-Lieder sem samanstendur af fimm lögum þar sem Mahler nær einstöku jafnvægi milli ljóðrænnar íhugunar og dramatískrar tjáningar. Í þessum gullfallegu lögum lítum við bæði inn á við sem og út í hinn stóra heim, finnum í náttúrunni samhljóm með ástinni, í angan af trjám og sætu bragði hunangsins. Þarna er á ferð hljóðheimur sem lætur engan ósnortinn.
Eftir hlé tekur við ljóðaflokkur eftir Richards Strauss. Flutt verða öll átta lögin úr Acht Gedichte aus „Letzte Blätter“ op. 10, sem hann samdi á unglingsárum sínum við ljóð eftir Hermann von Gilm. Þrátt fyrir ungan aldur bera lögin vott um mikla næmni og skarpa tilfinningu fyrir tónum og texta. Þessi ljóðaflokkur inniheldur sum af ástsælustu lögum hans, t.a.m. Zueignung, Die Nacht og Allerseelen. Dagskránni lýkur með einu af þekktustu sönglögum Strauss, Ständchen, leikandi léttu og sprúðlandi lagi ástar og eftirvæntingar.
Bryndís og Eva Þyri hafa unnið mikið saman sundanfarin ár. Hæst ber verkefnið „Faldir fjársjóðir“ þar sem þær söfnuðu saman óþekktum lögum og ljóðum eftir íslenskar konur, fluttu á ýmsum tónleikum og tóku upp plötu sem kemur út á næstu mánuðun. Einnig má nefna þátttöku þeirra í Ári íslenska einsöngslagsins sem fór fram í Salnum í Kópavogi 2022-2023 og heimsóknir þeirra á hjúkrunarheimili á Höfuðborgarsvæðinu, þar sem þær hafa haldið tónleika með aðgengilegri efnisskrá fyrir íbúa og gesti þeirra.
Tónleikarnir eru um ein og hálf klukkustund, með hléi.
Efnisskrá
Gustav Mahler (1860-1911)
Wer hat das Liedlein erdacht? úr “Des Knaben Wunderhorn” (1899/1901)
Ljóð: þjóðvísa/óþekktur höfundur
Rückert-Lieder (1901-02)
Ljóð: Friedrich Rückert
Ich atmet’ einen linden Duft
Liebst Du um Schönheit
Um Mitternacht
Blicke mir nicht in die Lieder!
Ich bin der Welt abhanden gekommen
Richard Strauss (1864–1949)
Acht Gedichte aus „Letzte Blätter“ op. 10 (1885)
Ljóð: Hermann von Gilm
Zueignung
Nichts
Die Nacht
Die Georgine
Geduld
Die Verschwiegenen
Die Zeitlose
Allerseelen
Ständchen op. 17 nr. 2 (1886)
Ljóð: Franz Kugler

