© 2026 Tix Miðasala

IÐNÓ
•
28. júní
Miðaverð frá
2.500 kr.




Brenninetla
Brenninetla er djasstríó skipað þeim Kjartani Huga (saxófónn), Stígi Grendal (gítar og bassi) og Hinriki Torfa (trommur). Hljómsveitin byrjaði sem spunadúó hjá Kjartani og Hinriki, en þegar þeir fengu Stíg með í verkefnið þróaðist hljómsveitin í kraftmikið tríó sem vinnur með allskonar hugmyndir Tónlist sveitarinnar byggir á djassi og frjálsum spuna, en sækir líka áhrif í alls konar aðrar áttir. Þeir leggja mikla áherslu á samskipti í spilamennskunni og að leyfa tónlistinni að þróast náttúrulega í augnablikinu, þannig að engir tónleikar verði alveg eins. Brenninetla lenti í öðru sæti á Músíktilraunir 2026, þar sem sveitin vakti athygli fyrir spunadrifinn og kraftmikinn flutning. Þar hlaut Stígur Grendal einnig verðlaun sem „Besti gítarleikari“ keppninnar. „Brenninetla var i nettum stríðnispúkagír, keyrði sinn frjálsa djass í einum löngum spuna og lék ekkert af því sem kom sveitinni í úrslitin. Pönkarar! Kornungur gítarleikarinn hljómaði eins og fimmtugur reynslubolti á mála hjá ECM og það var hrein unun ad fylgjast með tríóinu. Um miðbikið duttu þeir félagar inn i óheft, dásamlegt flæði, og tónlistarflutningur verður bara ekki mikið betri en þetta. Það var so gaman á sviðinu og já, næsta pirrandi sjálfsdekur, en ég gef þessum meisturum 100 prósent afslátt á öllu slíku.” Kjartan Hugi hefur auk þess verið nefndur í Morgunblaðinu sem bráðefnilegur spunadjassleikari fyrir verkefnið sitt „Mávasessjón“ og fleira. Hinrik Torfi er líka mjög efnilegur ungur trommari sem hefur spilað áður á djass á Iðnó með henni frábæru Petals Þeir munu spila efni fyrir fyrstu breiðskífu þeirra, sem verður tekinn upp núna í sumar, og fleiri slagara.

